23desember

Jólafrí.

Tónlist: Hide and seek - Imogen Heap.

Jæja, sit hérna ein í geymslunni heima hjá mér. Þannig er mál með vexti að nettengingin næst inní geymslu en ekki í herberginu mínu, hvað er það? Það er samt mjög kósí hjá mér, geymslan er svo lítil og full af drasli, er með góða köku og Binnu, Gulla og Danna á msn. Ekki viss um að það væri jafn notalegt í geymslunni hennar Völu, hennar geymsla er bara á stærð við bílskúr :)

Elska að vera komin heim, svo gott að vera hérna á Vopnafirði. Ekkert smá nice hittingur heima hjá Alla Pétri kvöldið sem ég kom heim, ég, Dagný, Ingunn, Kristín, Bjarki, Gísli og Gubbi. Ingunn og Kristín búnar að þrífa þar, ekkert smá flott.

Svo í gær gerðum ég, mamma, Dagný, Amma, Bjartur, Heiðar og Tryggvi laufabrauð, endaði svo bara þannig að ég og strákarnir horfðum á alla þættina af "á baðkari til Betlehem".

Stína: Hvar er jatan?
Klemmi: Jatan? Jáá jatan! Hún brotnaði, hún er í viðgerð.

Um kvöldið var síðan hittingur hjá okkur stelpunum heima hjá Alla, fórum síðan í smástund uppeftir til Manna.

Í morgun rak mamma mig á fætur til þess að fara að þrífa, skreyta og punta. Fannst það ekkert sniðugt, ég og Dagný pökkuðum alveg helling inn sem var heljarinnar stuð, var svo bara að koma af rúntinum með uppáhaldsfrændum mínum, vorum að skoða jólaskreytingarnar, sumir aðeins að missa sig.


Þorláksmessa á morgun, skata á hótelinu með pabba, skreyta jólatréð hjá ömmu og afa og heima, Þorláksmessugleði - gerist ekki meira nice :)

Sakna MA-inganna minna.

<img src=http://viewmorepics.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.editAlbumPhoto&albumID=936878&imageID=7680343>
23. desember 2007 klukkan 01:12
Berglind Steindórsdóttir
5 athugasemdir
15desember

Styttist í jólafrí :D

Tónlist: Apologize - Timbaland.

Jæja, það styttist alltaf í jólafríið, kem heim 20.des, get ekki beðið. Geðveikt gaman hér en það jafnast ekkert á við Vopnafjörð :) Sé fram á mjög gott jólafrí, ekki búin að fara heim í 5 vikur eða eitthvað, verður æðislegt að sjá alla þarna heima aftur. Bjartur, Heiðar og Tryggvi eru að koma heim, fæ svo að sjá vini mína, fara í ræktina, slappa af. Mamma og amma ákváðu að seinka laufabrauðsgerðinni bara fyrir okkur, ég, Dagný og strákarnir vorum geðveikt ánægð.

VMA krakkarnir farnir heim, geðveikt tómlegt hérna, skrítið að sjá ekki Kristínu, Ingunni, Bjarka, Gunnar og Þórgunni  á hverjum degi. Samt mjög kósí, sátum í morgunmat heillengi áðan, ég, Dagný, Vala, Ásta, Inga, Veiga, Snorri og Aron. Allt orðið svo jólalegt alls staðar, komin í rosalegt jólaskap, fór í langa sturtu áðan að hlusta á jólalög, hlusta jafn mikið á jólalög og Ingunn :)

Ég, Dagný, Vala, Kristín, Ingunn og Þórgunnur fórum í skautahöllina um síðustu helgi, það var æðislegt. Þórgunnur að fara til Ástralíu í heilt ár :( Þetta var svo gaman, fengum okkur svo Brynjuís.


Fór í tíu-bíó í gær með Völu, Veigu, Ingu Lóu, Snorra, Áslaugu, Ingvari og Magnúsi Darra. Of ógeðsleg mynd fyrir mitt litla hjarta. Síðan dönsuðum við bara heim, ég og Áslaug með stærðfræðidansinn! Þegar við komum heim fórum ég og Vala aðeins niður til Veigu þar sem hún, Inga, Snorri, Ísak, Einar og Aron og hinn Aron voru.

Svo eru það bara 4 skóladagar eftir, mánudagurinn og þriðjudagurinn verða erfiðir en svo verður bara gaman, jólatímar og svoleiðis. Þessi helgi mín verður ekki skemmtileg held ég, stærðfræðikönnun á mánud - kann ekki rassgat, skil á munnlegu verkefni í dönsku, íslenskumappa og íslenskuritgerð! Eina sem ég er búin með er íslenskumappan.

Það sem ég elska mest.

Annars get ég bara ekki hætt að brosa, ég ætla að byrja á íslenskuritgerðinni.

Kv.Berglind.
15. desember 2007 klukkan 14:09
Berglind Steindórsdóttir
5 athugasemdir
02desember

Árshátíđ MA 2007



Árshátíð MA

Jæja, þá er árshátíðin búin, það var mjög gaman, allir svo fínir og svoleiðis :)
Fannst borðhaldið skemmtilegra en ballið samt, Flosi Ólafsson algjör snillingur, skemmtileg atriði og góður matur.
Ballið var eiginlega ekkert skemmtilegt, gus gus að spila sem að er tónlist sem að mér finnst ekki skemmtileg.
Fór svo í nokkrar myndatökur með nokkrum vel völdum einstaklingum, dansaði gömlu dansana og svoleiðis.
Veit nú ekki hvað ég á að segja meira um þetta, setti fullt af myndum inná myspeisið mitt.
18 dagar þangað til að ég fer heim!
Fyrsti í aðventu, er komin í roooosalegt jólaskap, jólalög út um allt, styttist í jólafrí, jólaskraut og gaman gaman.
Ætli ég haldi ekki áfram að lesa í Hvid sommer, jafnvel þótt ég vilji það svo ekki.

02. desember 2007 klukkan 12:53
Berglind Steindórsdóttir
3 athugasemdir
14nóvember

Innihaldslaust.

Tónlist: New born - Muse.

Útaf þessari rosalegu hvatningu sem ég fékk frá henni Kristínu þá ætla ég að skrifa hérna nokkrar línur, þori ekki alveg að lofa því að blogga aftur fljótlega en ég get lofað að reyna.
  

  • Mikil tilhlökkun í gangi akkurat núna, 15 dagar í árshátíðina held ég. Keypti mér einmitt spariskó á glerártorgi í gær og komst að því þegar ég var komin með þá uppá vist að liturinn er hvorki eins né krumpurnar þarna framaná. Alltaf er ég jafn heppin ..
  • Svo er víst Dikta að koma að spila hérna .. einhverntímann. Mjög spennt, Þórgunnur samt ennþá spenntari, hálf furðulegt hvað hún hoppaði um af gleði.
  • Eitt í viðbót, er að fara HEIM um helgina, get ekki beðið. Rúsínan í pylsuendanum - allir að fara heim, including Bjartur og Heiðar - uppáhaldsfrændur mínir í öllum heiminum.

Veit ekki alveg hvað ég hafði hugsað mér að skrifa um í þessu bloggi, er með þessa rosalegu ritstíflu.
Það hefur ekki margt merkilegt á daga mína drifið ..

Keypti mér loksins kort í ræktinni, búin að fara tvo daga í röð með stelpunum, mjög ánægð með mig, svo gott að hreyfa sig aðeins aftur.
Fékk líka miðannarmat, kom vel útúr því. Hef síðan verið að horfa á Friends í öllum mínum frístundum, flott hjá mér.

Vá hvað þetta var mikið að tilgangslausum upplýsingum .. þannig að ég ætla bara að hætta.

Endum þetta á smá föndri sem ég og Kristín gerðum í dag.


Þvílíkt meistaraverk, eh? :)

-Berglind

14. nóvember 2007 klukkan 21:44
Berglind Steindórsdóttir
4 athugasemdir
03nóvember

Vopnafjörđur :)

Tónlist: More than a feeling - Boston.

Jæja, núna er ég stödd á Vopnafirði, heima. Kom hingað á miðvikudaginn og er búin að slappa verulega af, ekkert nema nice.
Búin að fá helling af góðum mat, hitta ömmu og afa, litlu frænku, spila mikið á flautuna, kaupa mér ís, baka. Það er svo gott að vera heima, elska að hafa ekkert að gera!

Komin með einkabanka, finnst ég vera svo stór, samt ekki. Síðan tekur bara Akureyri aftur við á morgun, smá spenningur að komast þangað aftur til að vera með vinum mínum en vil samt ekki fara frá Vopnafirði. Fínt að komast aftur í skólann, svo ótrúlega gaman í MA en ég bara nenni ekki að læra, nenni ekki að gera heimavinnuna mína og vakna kl. korter yfir 7.

Heimavinnan er svosem alveg viðráðanleg ef maður skipuleggur sig vel, nenni bara ekki að læra meira þegar ég er búin í skólanum. Svo mikið stökk frá því að læra kannski heima í einu fagi á dag í grunnskóla og síðan vera allt í einu með heila blaðsíðu í minnisbókinni sinni af heimalærdómi. Ég er náttúrulega alveg rosalega skipulögð, hangi í tölvunni eftir skólann og geri eitthvað letilegt, læri svo á kvöldin.

Hlakka ekki til eftir skóla á mánudaginn, búin kl.4, læra heilmikið finnst mér líklegt og svo ÞRÍFA fyrir herbergisskoðunina. Herbergið okkar Völu hefur örugglega aldrei verið jafn skítugt, draslið mitt á víð og dreif og ryk útum allt. Sérstaklega baðherberginu, held að það sé einhver ryksegull í gólfinu, hvað sem það nú er, tveir dagar eftir þrif og gólfið orðið loðið eins og api. 

Veit ekki hvað ég á að skrifa um meira, fékk þriggja tíma vinnu í kvöld, hlakka svolítið til, vona bara að það hafi ekki verið einhverjar rosalegar breytingar á þessum mánuðum sem ég var í burtu. Vil ekki vera eins og belja á svelli.
Sit bara inní stofu núna og bíð spennt eftir lambalærinu hennar mömmu sem er helmingi betra en þjóðverjasteikurnar í mötuneytinu.

Smashing.

Okey bæ.


"Cause I'm dead sexy"
03. nóvember 2007 klukkan 18:23
Berglind Steindórsdóttir
4 athugasemdir
28október

Vistin, Akureyri, skólinn ..

Þetta er í þriðja skiptið sem ég byrja að blogga í dag, veit bara ekkert hvað ég ætla að skrifa um :)

Vistin er orðin miklu heimilislegri en hún var, svona þegar maður er búinn að kynnast meira af fólki, held samt að ég eigi aldrei eftir að fá svona heimatilfinningu hérna.
Akureyri er líka fínn bær, ekki of stór .. bara passlegur. Hata samt  allar þessar brekkur.

Erfið vika sem var að klárast núna, stútfull af könnunum, ritunarverkefnum, munnlegu verkefni (sem ég og Maggý gerðum með glæsibrag btw), heimalærdómi, vinnubókaskilum, stærðfræði og ég veit ekki hvað og hvað. Gerði varla annað en að læra, var komin með alveg uppí kok af þessu.

Þetta reddaðist nú samt, kannski vegna þess að ég er svo skipulögð 8)


Þessi helgi er búin að vera mjög góð, mikið um leti, át og spjall. Föstudagskvöldinu var bara eytt í heimsóknir, fórum aðeins til Ísaks og eyddum síðan heillöngum tíma niðri hjá Jósu .. ég, Vala, Dagný, Ásta og Halldóra.

Í gær var ég með elsku bestu æskuvinkonum mínum, það var best. Aðalbjörg kom í heimsókn og Þórgunnur var þarna líka. Þess má geta að ég og Kristín rústuðum actionary.

Þessi sunnudagur er búinn að vera frábær, byrjaði á því að sofa lengi lengi, fór síðan í morgunmat þar sem ég hitti Veigu og síðan dreif ég mig út að skokka með Völu minni. Eftir það skelltum ég, Dagný, Ingunn og Kristín okkur í sund .. það var mjög nice .. hef ekki komið í þessa sundlaug í 100 ár (betri sundlaug á Vopnó samt).

Er bara að reyna að sýna Völu tilitssemi núna, er með headfones og hef ekki haft hátt í allan dag. Hún er nefnilega að læra fyrir stærðfræðikönnun í 103 - sem þýðir að hún er alltaf lærandi. Kannski ég ætti að fara að slá þessa kennara hennar utan undir?

Jæja, nú veit ég ekki hvað ég á að skrifa meira, búin með heila plötu af suðusúkkulaði á þessum stutta tíma. Slæmt. Held að ég ætli að kíkja niður til strákanna eða til Maggýjar og Binnu.

Kv.Berglind :)

28. október 2007 klukkan 16:55
Berglind Steindórsdóttir
3 athugasemdir
16október

dugnađur ..

Tónlist: Only - Nince inch nails.

Vá, litla lata stelpan var aðeins of dugleg núna. Ég er búin að vera í eyðu síðan kl.10 og ég var rétt í þessu að kveikja á tölvunni, svei mér þá .. held að það hafi ekki gerst áður.
Mamma nei, ég á það reyndar eftir að búa um rúmið .. en þegar ég kom á vistina þá fór ég niður í þvottahús, LÆRÐI það sem á að gera fyrir morgundaginn, raðaði heilli stílabók í mismunandi möppur og sit núna hérna að blogga.
Vaninn er að kveikja bara strax á tölvunni en NO MORE! Ég fór í ræktina í gær með Dagnýju og Tinnu, vaskaði upp í morgun og fór með allt óhreina tauið í þvott. Ég skil bara einfaldlega ekki hegðun mína, líður vel samt :)

Meðan ég man, þá setti ég sennilega inn 100 myndir frá vistinni á www.picasaweb.google.com/berglind91 og ætla bráðum að setja myndir úr skálaferðinni og ísferðinni.

Anyway .. um helgina fór ég HEIM til Vopnafjarðar. Eins og svo margir vita kannski þá elska ég engan stað jafn mikið og þennan þannig að helgin mín var mjög nice. Fékk góðan mat, fór í mat til ömmu og afa, kleinur til ömmu Dóru, kíkti á litlu sætu frænku, fór á sjoppuna með stelpunum að kaupa ís (besti ís í heimi, oj þér Brynjuís), rölta, spjalla, æfingarakstur, sofna yfir sjónvarpinu. Var reyndar hálflasin, að kafna úr kvefi og hálsbólgu, beinverkir, kalt og slappleiki.
Það var samt langbest að segja aftur hæ við fólkið sem maður mætir og jafnvel spjalla við það. Þoli það ekki við svona stóra staði eins og Akureyri og Reykjavík þegar maður labbar bara framhjá fólki og brosir ekki einu sinni til þess, vön því að vita hverjir allir eru.

Kominn snjór hérna á Akureyri, hlaut að fara að gerast. Allt gott annars að frétta af mér, líður bara vel.
P.S. Ég á bestu vini í heimi, I love you guys :)


-Berglind sem ætlar að fara út með ruslið.
Og ég sakna Bjarts og Heiðars :'( og fleira fólks að sjálfsögðu.
16. október 2007 klukkan 11:05
Berglind Steindórsdóttir
13 athugasemdir
27september

Sagasagasaga.

Jæja, mér fannst vera kominn tími á blogg :) Ætla nú ekki að skrifa neitt merkilegt nema það að það er allt fínt að frétta af mér, skólinn er góður og vistin líka.

Langar að deila með ykkur smásögu sem nýja vinkona mín Inga Lóa samdi. Hún vann nú smásögukeppni í 9.bekk þannig að hún er hipp og kúl og allt það. Veit að þetta virðist langt en er alveg þess virði.

 Þótt að sagan sé sorgleg og þunglyndisleg þá er hún hress stelpa í alvörunni sko .. og hættir ekki að hlæja .. og tala.


Dauðleg Fíkn
“Svo falleg, svo fullkomin, svo örugg, svo hamingjusöm” Sögðu tveir strákar um leið og þeir horfðu slefandi á eftir Diljá þegar hún labbaði skælbrosandi framhjá þeim og í áttina að þungbrýndum kærastanum sínum. “Hún er með svo flott…” “…augu” Annar strákurinn kláraði setninguna fyrir hinn og þeir kinkuðu dáleiddir kolli á sama tíma. “Það er oft meira bak við brosið, ef þið horfið vel á hana þá sjáið þið að ekkert af þessu er raunverulegt” sagði svartklæddur strákur sem stóð við hliðina á þeim um leið og hann labbaði í burtu. Strákarnir fussuðu og hristu hausinn þegar skrítni strákurinn var horfinn, að eitthverjum skildi detta þvílík vitleysa í hug!

Diljá labbaði hratt í burtu frá öllum krökkunum sem sátu við borðið hennar. Hún leit niður um leið og hún labbaði í áttina að klósettinu, hún vildi ekki að neinn myndi sjá tár hennar. Gervibrosið sem hafði verið fast á henni síðasta korterinn hvarf um leið og hún sneri baki í krakkana sem hún þóttist kunna vel við. Hún læsti að sér inná klósetti og byrjaði að róta æst í töskunni sinni. Diljá fann loksins það sem hún var að leita að. Hún dró upp stóra sprautu og horfði gráðug á glampann sem speglaðist í glæru efninu um leið og hún hóf sprautuna inní hendina á sér og fann adrealínið sprautast innum æðarnar og flæða um hana alla. Diljá lét augun aftur og hallaði sér að veggnum og lá þarna í smástund. Þegar hún gat staðið upp rölti hún fram en sá samt eitthvað ennþá í móðu. Hún skvetti smá vatni framan í sig, leit í spegilinn, festi gervibrosið á sig og lagaði á sér hárið. Diljá dró ermina á peysunni sinni niður eftir mörnum handleggnum og gekk hún fram í áttina að fólkinu sem áttu að heita vinir hennar.
Eftir skóla labbaði hún með svokölluðum vinkonum hennar. Hún stoppaði fyrir utan húsið hjá kærastanum og kláraði sígarettuna og fór svo inn. –Hæ elskan ég er komin- kallaði Diljá um leið og hún opnaði hurðina. –Díses kanntu ekki að banka kona?- hreytti Gústi í hana. Hún steig inn og lokaði hurðinni –fyrirgef- byrjaði hún á. –Skiptir ekki máli!- sagði Gústi fúll um leið og hann labbaði fram hjá henni með handklæði um sig miðjan og strunsaði inní herbergið sitt. Diljá labbaði á eftir honum. –Hvað eigum við svo að gera í dag elskan- Sagði hún þegar hún var búin að setja á sig gerfibrosið og stóð útá gólfi og vissi ekki hvað hún átti að gera af sér. Gústi leit hvasst á hana um leið og hann var búinn að klæða sig í buxur. –Varstu að reykja?- sagði hann reiður og labbaði ógnandi að henni. –nei ég var bara með stelpunum eg sver það!- hálfvældi Diljá um leið og hann hóf hendina á loft til að berja hana.
–Eins gott fyrir þig- sagði hann og sló hana utan undir. Hún kipptist til og eitthvernveginn fór ermin á peysunni hennar upp. Gústi sneri baki í hana um leið og hann leitaði að bol. Hann sneri sér við og sá kærustuna sína liggjandi á gólfinu með ekka. –Æi fyrirgefðu elskan mín, þú veist að ég meinnti ekkert með þessu-. Gústi strauk henni um rauðann vangann og niður hendina. Svo leit hann á marna hendina og sá för eftir sprautuna. –Varstu að sprauta þig aftur helvítið þitt?!- hreytti hann í hana um leið og hann reif ermina á peysunni hennar upp. –Nei ég sver þetta var slys, þetta er ekkert sprautufa..- Hún komst ekki lengra því að hann Hafði sparkað svo fast í magann á henni að hún missti andann. Gústi labbaði í burtu frá henni, náði sér í jakka, kom svo alveg upp að henni og horfði í augun á henni. – Djöfull ertu ógeðsleg, þú ættir að sjá sjálfa þig, láttu þér þetta að kenningu verða- Svo kýldi hann kærustuna sína og labbaði út. Og skildi Diljá sína eftir í sínu eigin blóði.

Diljá opnaði augun. Hún vissi ekki hvað klukkan var, hvaða dagur og hvar hún væri. Hún reyndi að lyfta höndunum en þær voru of þungar og aumar til að hún gæti lyft þeim. Hún reyndi að standa upp, hún gaf frá sér stunu og féll aftur fyrir sig.
Diljá tók upp bolinn og leit á magann á sér sem var fjólu-blá-bleikur. Hún fékk allt í einu sterka löngun. Hún vissi ekki í hvað
en hún vissi að hún átti það. -Hvar er helvítis bakpokinn? - Löngunin var svo sterk að hún náði að standa á fætur. Hún hélt um magann á sér og gerði tilraun til að komast fram. Diljá sá bakpokann liggjandi á gólfinu hjá útidyrahurðinni og stökk þangað með dýrslegann glampa í augunum. Hún gramsaði í smástund en dró svo upp ástina sína einu; fallega glæra sprautu. Hún sá gráðug augu endurspeglast í glerinu og flýtti sér að stinga nálinni inní sig áður en augun yrðu á undan. Fann fyrir bestu tilfinningu í heimi streyma um æðarnar. –Allt í lagi, nú verður allt í lagi, ekkert vont.- muldraði Diljá um leið og hún féll í kunnulegann dvala.
Þegar hún gat staðið upp fór hún út og labbaði þangað sem hún hélt að Gústi væri. Nú var allt í lagi, henni leið vel og hún ætlaði að láta allt vera gott. Hún hafði reitt hann til reiði, þess vegna var hann vondur við hana. Það var allt í lagi. Hún átti það skilið.
Diljá labbaði hratt heim til Gylfa sem var besti vinur Gústa. Þegar hú opnaði hurðina labbaði hún í fangið á Gylfa -ó fyrirgefðu er Gústi hé..- Gylfi svaraði henni áður en hún gat klárað –Bíddú bara hérna, hann kemur eftir smá-. Diljá settist á gólfið upp við vegginn og beið eftir sínum heittelskaða í þögninni. Hún vissi ekki hvað það liðu margar mínútur þangað til hún heyrði fliss og fótatak. Svo opnaðist hurðin fyrir aftan hana og Gústi labbaði út leiðandi stelpu sem hann hvíslaði eitthverju til hennar og hún flissaði stöðugt.
–Gústi?- Diljá stóð upp og labbaði að honum. –Farðu bara ég kem- Sagði Gústi við stelpuna og hún trítlaði í burtu. –Hvað villt þú?- spurði Gústi Diljá frekjulega. – Fyrirgefðu, nú er allt í lagi? Verður ekki allt í lagi? Eg hef þig og þú hefur mig. Ég gerði allt í lagi. Ekkert vont- sagði Diljá hratt á meðan hún reyndi að komast nálægt Gústa til að getað faðmað hann. Gústi ýtti henni í burtu og fitjaði upp á nefið um leið. –Á hverju ertu stelpa!? Þú ert ógeðsleg, láttu mig vera, skríddu bara aftur í holuna þar sem þú komst frá og dópaðu þig hóran þín. Þú ættir að sjá þig. Farðu burt frá mér, ég vil ekki sjá þig! Þetta er búið- Gústi labbaði í burtu í áttina að flissandi stelpunni.
Diljá stóð sem frosin á gólfinu,
-búið..?- Það var eins og þögnin gleypti orðin. Þögnin hélt áfram að þegja eins og ekkert hafði í skorist. Diljá fann tárin laumast niður kinnarnar. Þegar hún labbaði af stað voru merki um málningu löngu þurkuð úr andlitinu á henni. Hún labbaði út. Það var myrkur og kalt. Hún labbaði að lítilli tjörn, það var byrjað að snjóa og litlar snjóflygsur festust í svörtu hárinu á Diljá. Hún settist hjá tjörninni og leit í vatnið og sá spegilmynd sína. Hún þekkti sig varla. Það var rétt hjá Gústa; hún var ekki mjög sæt. Hún var með risastórt glóðurauga á vinsta auganu, bólgna kinn, þykka bauga og tárin voru enn á sínum stað. Það var bara eitt sem gat lagað þetta.
Diljá rótaði enn einu sinni í bakpokanum sínum í leit að huggun. Hún dró upp sína stæðstu og síðustu sprautu. Í henni var aðeins meira en öllum hinum. En það var allt í lagi, þá yrði allt ennþá betra. Diljá dró upp ermina og stakk sprautunni inní sig. Diljá átti von á að finna bestu tilfinninguna sem var henni kunnuleg. En þessi var vond. Þessi var köld og lét hana kippast til. Diljá grúfði sig niður og lét myrkrið gæta sín í kuldanum og beið eftir að kippirnir hættu. Loksins hættu kippirnir, á sama tíma og tárin, hjartslátturinn og andardrátturinn.

Nokkrum dögum síðar í kirkjugarðinum mátti finna hvítann legstein sem ritað var á

Diljá Rós Sigurðardóttir1990-2007, elskuleg dóttir, systir og barnabarn. Lést úr óbærilega erfiðri skólagöngu í skóla lífsins.


Við legsteininn láu hvítar og rauðar rósir. Bak við legsteininn voru stór tré. Þar mátti sjá tvo stráka, en hvorugur vissi af hinum. Annar var grátandi og hinn svartklæddur. Sá grátandi gekk að legsteininum og grúfði sig við hann. – Afhverju þurftiru að hlusta á mig! Þú veist að ég meinnti ekkert með þessu elskan mín. Ég sakna þín svo mikið!- Gústi saug uppí nefið –Djöfullinn!- öskraði hann og barði með hnefanum í legsteininn svo rautt blóðið litaði hann og hvíta fönnina í kringum hann. Svo labbaði hann í burtu.
Sá svartklæddi labbaði þá að legsteininum og kraup við hann. –Ég vissi að ekkert af þessu var raunverulegt, öll þessi gervibros, ég sá í gegnum þig og ég skildi þig. En þú sást mig ekki. Elsku litla systir mín-. Sá svartklæddi labbaði í burtu og ef þú horfðir á eftir honum sástu engin spor í hvítum snjónum. Og ef þú horfðir vel gastu jafnvel séð hann gufa upp í hvítann himininn, eða hvað?

Blóðslóðin frá hvíta steininum náði alla leið til næsta legsteins við hliðina á Diljá sem var ekki langt frá. Og ef þú þurkaðir hvíta fönnina af svörtum steininum mátti sjá stafina

Andri Páll Sigurðarson 1987-2006. elskulegur sonur, bróðir og barnabarn. Lést í bílslysi. Við munum aldrei gleyma þér.

-Ingalóa

Ég táraðist þegar ég las þetta:O og ég er farin. Bless.

Nýtt veggfóður á baðherberginu hjá Bjarka og Agli :)
27. september 2007 klukkan 20:36
Berglind Steindórsdóttir
7 athugasemdir
21september

Akureyri:)

Tónlist: Little by little - Oasis.

Jæja, þá er ég komin með allt mitt hafurtask til Akureyrar í herbergi 2217 .. Kristnes. Herbergið er bara miklu betra en ég þorði að vona, nóg af plássi fyrir mig og Völu :)

Það er fínt að vera hérna með öllum vinum mínum, sakna samt Vopnafjarðar alveg rosalega. Fékk alveg svakalega heimþrá í gær .. 

Er búin að gera alveg heilmikið síðan ég kom hingað, fór að horfa á Bjart frænda keppa með KR t.d. Gaman að hitta hann aftur. Síðan skelltum ég, Vala, Dagný, Kristín og Ingunn okkur í bíó á Knocked up um daginn, geðveikt góð mynd, okkur fannst samt ekkert sniðugt þegar var sýnt í hausinn á barninu! Kvöldið eftir skellti ég mér svo aftur í bíó með Bjarka, Agli og Gunnari á Vacancy .. góð mynd þótt að ég hafi verið skíthrædd allan tímann.

Síðan var þessi dýrlega busun. 4.F var böðlabekkurinn okkar. Komum í skólann og þurftum að labba í gegnum göng af böðlum sem hummuðu á okkur og labba meðfram veggjunum/skríða á bakinu, vorum líka látin troða okkur 270 í Kvosina sem að var EKKI mjög kósí, steikjast eins og beikon. Daginn eftir var aðalbusunin, 4.F kom og kenndi okkur MA lögin og dans sem við sýndum síðan fyrir allan skólann í Speedo, sundhettu og vafin í vitawrap. Síðan var ratleikur, þurftum að hlaupa útum allan skólann .. og að sjálfsögðu má ekki gleyma RÉTTUNUM. Jújú, busarnir áttu að skríða á 4 fótum og jarma, gerðum það á meðan fólk sprautaði á okkur með vatnsbyssum og krakkarnir á vistinni köstuðu vatnsblöðrum í okkur af svölunum. Spes.

Um kvöldið var busaballið, hörmulegur DJ en mjög gaman. Dansaði helling sem að ég geri alls ekki oft þar sem að ég kann það ekki. Í gærkvöldi fórum ég, Ingunn og Ómar á kaffihúsakvöld í VMA, það var nice, sérstaklega þegar Stebbi? söng, ógeðslega flott.

Er bara búin að vera í bókakaupum og allskonar. Eyddi fjandans 35.000 krónum í það! Er ekki að komast yfir það. Þurfti líka að redda mér alveg þvílíku drasli fyrir busunina, ég og Ásta fórum niðrí sundlaug og settum upp puppy eyes, þá lánaði konan okkur flottustu sundhettur í heimi. Vá, svo flottar.

Sakna Vopnafjarðar:(

Kv.Berglind.
21. september 2007 klukkan 17:41
Berglind Steindórsdóttir
6 athugasemdir
12september

Ítalía

Tónlist: Strong - Robbie Williams.

"Breski rokksöngvarinn Robert Plant staðfestir á fréttavef BBC í dag, að hljómsveitin Led Zeppelin muni koma fram minningartónleikum um Ahmet Ertegun, stofnanda Atlantic hljómplötuútgáfunnar. Verður þetta í fyrsta skipti sem þeir Plant, Jimmy Page og John Paul Jones koma saman á sviði.  Pete Townshend, úr the Who, og Bill Wyman, sem eitt sinn var í Rolling Stones, munu einnig koma fram á tónleikunum."

Þessi frétt er á Mbl.is, fannst hún svolítið misskiljanleg*-)

Anyway, ég er víst komin heim úr ferðalagi mínu til Ítalíu:) Fínt þar, mikil afslöppun í heila viku. Sólbað, miðbærinn að borða og mikið borðað af ís. Sólbaðið gerði nú reyndar ekkert fyrir mig, fékk heilmikinn lit miðað við bikinífarið en er samt ennþá algjör næpa. Hótelstrákarnir náðu mér nú tvisvar í blak sem að var .. skrautlegt, var nú samt orðin "ágæt" í seinna skiptið:O Einnig var ég plötuð á einhverja leikæfingu fyrir skemmtun á hótelinu, leist nú ekki á blikuna þannig aaaaað ég beilaði .. múha.


Á leiðinni til Ítalíu komum við a sjálfsögðu við á Akureyri á vistinni, það var mjög nice að hitta alla aftur. Fórum líka til Öddu í Reykjavík sem að var líka mjög nice eins og alltaf.

Það sem er annars að frétta af mér er það að ég er bara að fara að yfirgefa Vopnafjörð á laugardaginn, finnst það rosalegt. Síðan er skólasetning á sunnudaginn og fyrsti skóladagurinn á mánudaginn, smá kvíði í gangi en ég kemst vonandi yfir það.
Var að skoða bekkinn minn og stærðfræðihópinn um daginn og NEI, hvaða fólk er þetta?:O Þekki ekki eina einustu manneskju þarna, Dagný er reyndar með mér í stærðfræði.

Herbergið okkar Völu er síðan á 2.hæðinni, beint á móti Kristínu og Dagnýju, beint fyrir ofan Bjarka og Egil, sama gangi og Gunnar og einni hæð fyrir neðan Ingunni og Þórgunni.
Skemmtilegt þetta herbergi, einn skápur með slá SAMAN og ein kommóða. Gott að við eigum "lítið" af fötum :Ö Og já, bara hilla á öðru skrifborðinu, veiii. Leigjum bara skápapláss af Dagnýju og Kristínu .. ekki?

Búin að vera að stússast í því að merkja föt og taka til dót sem ég ætla með. Merkja föt = leiðinlegt. Ég er ekki mikil saumakona. Síðan er það þetta bölvaða drasl sem maður á, ætli það endi ekki bara með því að maður geymi það uppí rúmi hjá sér.

Annnnnnars, pabbi kominn heim og ég ætla að fá mér eitthvað í svanginn, ekki búin að borða síðan kl.12 og það er ekki nógu gott fyrir mig. Það er ógeðslegt veður hérna btw, fyrir áhugasama .. og netið er í ruglinu, þannig að ef ég næ að vista þetta blogg þá er það kraftaverk. Merkilegt fyrir þann sem les þetta kannski, ha? Nei held ekki.

Hey, ég ætla að verða virkur bloggari aftur, okey? Búin að taka síðuna svolítið í gegn, gerði alveg nýtt í "Berglind".

Kv.Berglind:)
12. september 2007 klukkan 17:23
Berglind Steindórsdóttir
5 athugasemdir

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Berglind Steindórsdóttir
  • Netfang: berglind91@hotmail.com
  • Stađur: Vopnafjörđur, vistin í vetur.
  • Atvinna: Ollasjoppa, eđa einhverjar vaktir í vetur kannski.
  • Hjúskaparstađa: Á lausu.
  • Um mig: Er í MA, 1.F á félagsfrćđibraut.

Auglýsing

Ég

Textareitur

Fékk mér loksins góđa myndasíđu, nenni samt ekki ađ kópera myndirnar inná ţessa ţannig ađ fariđ á:
www.picasaweb.
google.com/berglind91

-Berglind:)

Einhverjar myndir

Leit